| Hvað bjóða Þemaferðir þér? |
| Þemaferðir geta skipulagt fyrir þig ferðina, leitað að réttu svæði fyrir þín áhugamál, fundið rétta staðinn og gistingu sem hentar þér, geta útvegað leiðsögn og aðra þjónustu sem þú þarft á að halda og þá skiptir einu hvort þú þarft upplýsingar um tjaldsvæði eða hótel. Á ferðum um áður óþekktar slóðir sparar það mikla fyrirhöfn að geta leitað til þeirra sem þekkja svæðið og koma þar með í veg fyrir ferðamaðurinn fari á mis við það sem hann kysi að kynnast. |

HVERNIG VIRKA ÞEMAFERÐIR
Þemaferðir er ferðaskipuleggjandi samkvæmt lögum nr. 73/2005 um skipun ferðamála. Þemaferðir selja ekki pakkaferðir heldur aðeins þjónustu sem auðveldar viðskiptavinum að ferðast með sín áhugamál í huga. Fyrirtækið er rekið af einkahlutafélagi með sama nafni, Þemaferðir ehf. Tilgangur félagsins er að reka ferðamiðlun og ráðgjöf hvort sem um er að ræða að skipuleggja einstaka þætti ferðar eða ferðir í heild sinni. Einnig tekur fyrirtækið að sér að skipuleggja námskeið, ráðstefnur eða aðra viðburði.
Þemaferðir selja aðeins sína þjónustu . Viðskiptavinir greiða okkur ekki fyrir þjónustu annara. Við skipuleggjum, pöntum og bókum fyrir þig og afhendum dagskrá, staðfestingar, leiðarlýsingar eða bara svörum fyrirspurnum varðandi svæðin okkar. Þjónusta Þemaferða er verðlögð í samræmi við þann tíma sem hún tekur, en einnig gerum við tilboð í stærri verkefni. |
|||||
|
© 2010 Þemaferðir ehf. - Bakka - 510 Hólmavík - Sími 451 3384 - Netfang: themaferdir(a)themaferdir.is - Unnið af Vefa.is