KJÖRSVÆÐI ÞEMAFERÐA

Kjörsvæði okkar eru þau svæði sem við þekkjum best. Við höfum búið og starfað á þessum svæðum og höfum trausta þekkingu á aðstæðum og ferðaþjónustu. Tengsl okkar við íbúa á þessum svæðum gerir okkur jafnframt kleyft að finna fyrir þig alla mögulega þjónustu og afþreyingu. Bara að nefna það.
 

STRANDIR

100_0327Strandir voru áður eitt af afskekktari svæðum Íslands, heimkynni harðdrægra galdramanna. Og enn búa Strandirnar yfir dulýðgi. Fjaran er síbreytileg og á eyðisvæðum er stutt frá brimlöðri upp á tilkomumikil fjöll.
> meira

 

VESTFIRÐIR

alftafjordur2Vestfjarðakjálkinn er engu líkur, vogskornasti hluti landsins þar sem hver fjörður hefur sín einkenni og alltaf er eitthvað nýtt að sjá og upplifa.
> meira

 

VESTURLAND

33Vesturland er fallegt svæði, uppsveitir Borgarfjarðarins er með gróðursælli svæðum Íslands, Snæfellsnesið með jökulinn, Breiðafjörður með eyjarnar óteljandi, og svo mætti lengi telja...
> meira


 

SKOTLAND

skotlandSkotland er nær en margan grunar bæði landfræðilega og menningarlega. Samt vita fáir af öllum þeim möguleikum sem Skotland býður upp á hvort sem menn sækjast eftir borgarmenningu, náttúruskoðun eða fjölbreyttri afþreyingu á ferðalaginu.
> meira
 
Þemaferðir finna og veita upplýsingar

Þemaferðir koma viðskiptavinum í samband við þjónustu heimamanna.


Þemaferðir þjóna bæði einstaklingum og litlum og stórum hópum.


Þemaferðir geta útvegað leiðsögumenn, leiðbeinendur og skemmtikrafta.


Þemaferðir skipuleggja ráðstefnur, námskeið, fundi, æfingaferðir og vettvangsferðir.


Þemaferðir veita þjónustu sem nýtist við skipulagningu ættarmóta, afmæla og fjölskylduferða.


Þemaferðir útbúa leiðarlýsingar, t.d. með sögum ljósmyndum og kortum.


Staðbundin þekking og sambönd Þemaferða geta einnig nýst ferðaskrifstofum. Þar er að finna heimamennina sem geta tryggt gæði ferðanna.